Innskráning

Stelpur í stuði

Stelpur í stuði

Kaldæingar bjóða nú í annað sinn upp á sumarbúðir fyrir 10-12 ára stúlkur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir (ADHD). Flokkurinn nefnist Stelpur í stuði og verður haldinn dagana 6.-10. júní 2011.

Markmið:

Markmiðið með Stelpum í stuði er að bjóða stúlkurnar velkomnar í sumarbúðir í Kaldárseli þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt.

Aðstaðan í Kaldárseli:

Kaldársel er frábær staður fyrir hressar og skemmtilegar stelpur. Þar eru útileiktæki, fótboltavöllur og íþróttasalur auk þess sem ævintýralegt umhverfið býður upp á óteljandi möguleika til útivistar.  Dagskráin í Kaldárseli er fjölbreytt og smanstendur af frjálsum dagskrártilboðum, kvöldvökum, kristinni fræðslu, söng, mikilli útiveru og reglulegum matartímum.  Dagsskipulag Kaldársels er afar heppilegt fyrir stúlkur með AD/HD vegna þess að ramminn er skýr, þær hafa sitt sæti við sitt borð með sinn foringja. Hvert borð er í sama svefnsal og herbergjum. Matartímar eru reglulegir. Á dagskránni eru fjölmörg tilboð um viðfangsefni sem mæta ólíkum áhugasviðum. Mun fleiri starfsmenn verða í þessum flokk en í hefðbundnum flokkum auk fagfólks og því auðveldara að mæta hverri og einni á hennar forsendum.

Brottför - heimkoma:

Farið verður með rútu frá Lækjarskóla mánudaginn 6. júní, kl. 10:00 en foreldrar sækja börnin sín í Kaldársel á föstudeginum kl. 17.

Sótt um dvöl

Fylla þarf út eyðublað þegar sótt er um pláss í dvalarflokkinn Stelpur í stuði á sérstöku umsóknarformi. Ástæða þess er að fara verður yfir umsóknir m.t.t. þess hvort hægt sé að mæta þörfum viðkomandi stúlku nægjanlega vel. Ef stúlka uppfyllir viðmið um aldur og greiningu má gera ráð fyrir að hún fái pláss.

Farið verður yfir umsóknir í þeirri röð sem þær berast og hámarks þátttakendafjöldi er 20 stúlkur. Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar um ,,Stelpur í stuði" og starfið í Kaldárseli má fá í síma 588-8899.