Á undanförnum 20 árum hefur orðið aukin þörf á samverustundum fjölskyldunnar og hefur félagið svarað þeirri þörf á margvíslegan hátt. Þar ber hæst foreldra- og fjölskylduflokkar sumarbúðanna. En á hverju ári bjóða sumarbúðir KFUM og KFUK upp á helgardagskrá fyrir börn og foreldra í formi mæðgna- og mæðginaflokka og feðga- og feðginaflokka, auk þess sem boðið er upp á fjölskylduflokka þar sem öll fjölskyldan getur átt saman góðar stundir í sumarbúðunum.

Í fjölskylduflokkum í sumarbúðunum er mikil áhersla lögð á notalegt andrúmsloft. Þar gefst fjölskyldunni í heild eða að hluta tækifæri til að eiga góðan tíma saman í fallegu og afslöppuðu umhverfi. Stærstu vandamál helgarinnar gætu orðið að velja hvað á að gera næst í frjálsa tímanum.

Dagskráin er í senn skemmtileg og uppbyggileg. Fræðslustundir eru fyrir foreldra og börn. Sumarbúðakvöldvökur eru sígildar með kraftmiklum söng, mögnuðum skemmtiatriðum og andlegu veganesti.

Boðið er upp á flokka fyrir alla fjölskylduna. Einnig eru í boði flokkar fyrir feðga- eða feðgin, fyrir mæðgur og mæðgin, og mæðgur eða mæðgin.

Útbúnaður

Rétt er að hafa búnað til útiveru s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, stuttbuxur, sundföt (þegar við á) og íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt. Einnig þarf að vera með sæng eða svefnpoka og kodda.

Skráning í fjölskylduflokka er í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28, s.588 8899 (alla virka daga kl. 9 – 17).