Aðalsíða2025-04-15T18:39:52+00:00
KFUM og KFUK 2025

Eftirvænting á aðventu

Á AD KFUK fundi, þriðjudaginn 21. nóvember, mun Petrína Mjöll Jóhannesdóttir mæta og vera með biblíulestur. Allar konur hjartanlega velkomnar á Holtaveg 28 kl. 17:00.

Jakobsvegurinn

Sr. Halldór Reynisson og dr. Sigurður Árni Þórðarson verða með efni á AD KFUM fundi 16. nóvember kl. 20:00 sem ber yfirskriftina Jakobsvegurinn. Stjórnun er í höndum Ársæls Aðalbergsson. Villa er í Fréttabréfi þar sem þessi fundur er auglýstur viku seinna. Fundarstaður er Holtavegur 28 og allir karlar eru velkomnir.

Kyrrð á AD KFUK fundi

Næsti AD KFUK fundur er þriðjudaginn 14.nóvember. Yfirskrift fundarins er kyrrð. Stjórn fundarins er í höndum Þórdísar Ágústsdóttur. Bergþóra Baldursdóttir sjúkraþjálfari verður með nokkrar líkams-og slökunaræfingar í upphafi. Ástríður Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur íhugun dagsins og síðan er bænastund. Söngur og tónlist verður á ljúfum nótum. KFUK konur eru hvattar til [...]

Sameiginlegur fundur AD KFUK og KFUM

AD KFUK og AD KFUM verða með sameiginlegan fund fimmtudaginn 9. nóvember. Hús Vigdísar, Veröld, verður heimsótt og mæting er þangað kl. 20:00. Á eftir er síðan helgistund í Neskirkju í umsjá sr. Steinunnar Arnþrúðar Björnsdóttur. Leiðsögn í Veröld ásamt kaffiveitingum í Neskirkju eru 1000 kr.

Hér getur þú skoðað Ársskýrslu 2024-2025

Siðareglur Æskulýðsvettvangsins

Mikilvægt er fyrir öll sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Siðareglur þessar gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða Æskulýðsvettvangins. Þær snúa annars vegar að samskiptum og hins vegar að rekstri og ábyrgð. Gerist aðili brotlegur við reglurnar er heimilt að vísa honum úr starfi, tímabundið eða að fullu.

  • Börn í sumarbúðum
  • Börn í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK
  • Unglingar í fjallgöngu
Fara efst