Vinagarður er kristilegur leikskóli, staðsettur í Laugardalnum í Reykjavík. Leikskólinn er einkaskóli og rekinn af KFUM&KFUK á Íslandi.
Starf leikskólans tekur mið af aðalnámsskrá leikskóla en auk þess er gengið út frá forsendum kristinnar trúar og áhersla lögð á kristna fræðslu, kristilegt siðgæði og að barnið öðlist grundvallartraust sem er viðfangsefni í trúarlegri uppeldismótun.
Í starfi leikskólans er einnig lögð áhersla á að börnin læri um náttúruna, læri að bera umhyggju fyrir henni og öllu því sem Guð hefur skapað.
Vináttan í víðum skilningi þess orðs er eins og rauður þráður í starfi leikskólans og er hún eitt af sérkennum hans. Tengist vináttan ávallt þemanu á einhvern hátt.
Skólinn er fyrir börn frá 18 mánaða aldri og skiptist í 5 deildir eftir aldri barnanna. Yngstu börnin eru á Lambagarði og Ungagarði en Kópagarður og Grísagarður eru fyrir 3 – 4 ára börnin og Uglugarður er fyrir 5 ára börnin.
Markmið leikskólans er að :
- að ala upp sjálfstæða, ábyrga einstaklinga sem elska og virða hvern annan og elska náungann eins og sjálfan sig.
- að miðla menningararfinum og stuðla að persónulegum þroska barnanna.
Leikskóli KFUM & KFUK var stofnaður 17. nóvember 1975 og starfaði í Langagerði 1 í rúm 26 ár. Hann flutti á Holtaveg 28 í Reykjavík 2. apríl 2002 og hlaut þá nafnið Vinagarður leikskóli KFUM og K.
Leikskólastjóri er María Sighvatsdóttir og má fá allar nánari upplýsingar hjá henni í síma 553 3038 og netfang leikskoli@kfum.is.