Ungmennaráð KFUM og KFUK á Íslandi er vettvangur þar sem ungt fólk fær tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og til þess að hafa áhrif á málefni og verkefni félagsins sem snúa að börnum og ungmennum. Ungmennaráð er skipað ungu fólki á aldrinum 18 – 25 ára sem taka virkan þátt í starfi KFUM og KFUM á Íslandi. Ráðið er skipað 5-7 einstaklingum að hverju sinni. Sótt er um setu í ráðinu með eyðublaðinu hér fyrir neðan.