Lög KFUM og KFUK í Vindáshlíð

  1. grein: Skilgreining á félaginu

Félagið heitir KFUM og KFUK í Vindáshlíð, er sjálfstæð starfsstöð í starfi KFUM og KFUK á Íslandi og starfar á grundvelli laga KFUM og KFUK á Íslandi. Starfsemin hefur aðsetur í Vindáshlíð í Kjós. KFUM og KFUK í Vindáshlíð er almannaheillafélag og skráð í almannaheillaskrá.

  1. grein: Hlíðarmeyjar

Hlíðarmeyjar teljast öll þau sem dvelja minnst í þrjár nætur samfleytt í Vindáshlíð í starfi á vegum KFUM og KFUK í Vindáshlíð.

  1. grein: Markmið

Markmið KFUM og KFUK í Vindáshlíð er:

  1. a) Að leiða fólk til trúar á Jesú Krist.
  2. b) Að stuðla að viðhaldi og uppbyggingu á húseignum, umhverfi og skógrækt staðarins.
  3. c) Að vekja áhuga á útiveru og náttúru Vindáshlíðar.
  4. d) Að afla fjár til hagsbóta fyrir starfið í Vindáshlíð.

Stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð vinnur að markmiðum sínum með skipulögðum dvalarflokkum, mótum, útgáfu og fræðslustarfi, fundarhöldum, fjáröflun, skógrækt og á annan þann hátt sem stjórnin ákveður hverju sinni í samræmi við þessi lög.

  1. grein: Stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð

Á aðalfundi skal kosið í stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð. Stjórnina skipa sjö aðalmenn og tveir varamenn, sem allir skulu vera fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi. Einn aðalmaður er skipaður af stjórn KFUM og KFUK á Íslandi til eins árs í senn. Þrír aðalmenn eru kosnir til tveggja ára í senn og þannig að á víxl gangi þrír úr stjórn á hverjum aðalfundi. Tveir varamenn skulu kjörnir til eins árs í senn. Áður en kosið er um varamenn skal niðurstaða kosninga aðalmanna liggja fyrir. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skal skipa formann, varaformann, ritara og gjaldkera. Í önnur hlutverk skal skipað eftir þörfum hverju sinni.

  1. grein: Hlutverk stjórnar KFUM og KFUK í Vindáshlíð

Stjórnin heldur fundi einu sinni í mánuði og oftar ef þörf krefur. Formaður boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim. Gjaldkeri skal annast reikningshald og hafa umsjón með rekstrar- og efnahagsreikningum. Ritari skráir fundargerðir stjórnarfunda, annast varðveislu þeirra og ber ábyrgð á starfsskýrslu stjórnarinnar fyrir hvern aðalfund starfsstöðvarinnar.

 

  1. grein: Kjörstjórn

Eigi síðar en mánuði fyrir hvern aðalfund, skipar stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð tvo félaga úr KFUM og KFUK á Íslandi í kjörstjórn. Skal hún vera utan stjórnar KFUM og KFUK í Vindáshlíð. Hlutverk kjörstjórnar er að stilla upp kjörlista fyrir stjórnarkjör, og skulu tilkynningar um framboð til stjórnar berast kjörstjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Kjörgengir eru fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi.

  1. grein: Aðalfundur

Aðalfundur skal haldinn fyrir 15. apríl ár hvert og til hans boðað með minnst viku fyrirvara. Atkvæðisrétt hafa félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sem greitt hafa félagsgjöld.

Á aðalfundi skal eftirfarandi vera á dagskrá:

  1. Starfsskýrsla stjórnar lögð fram til umræðu og samþykktar.
  2. Endurskoðaðir rekstrar- og efnahagsreikningar lagðir fram til umræðu og samþykktar.
  3. Fjárhags- og starfsáætlanir kynntar og lagðar fram til samþykktar.
  4. Afgreiðsla lagabreytinga, sbr. 10. gr.
  5. Stjórnarkjör, sbr. 4., 5 og 6. gr.
  6. Tilnefning tveggja skoðunarmanna reikninga, kosnir til eins árs í senn.
  7. Önnur mál.
  1. grein: Sjóðir og annað fé

Eigi má ávaxta sjóði í eigu KFUM og KFUK í Vindáshlíð nema í bönkum eða sparisjóðum, né veita lán úr þeim. Þó skal stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð heimilt að ráðstafa sjóðum og eignum á annan hátt ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi, þó aðeins með fullu samþykki stjórnar KFUM og KFUK á Íslandi. Eigi má þó ráðstafa eignum eða tekjum KFUM og KFUK í Vindáshlíð eða veðsetja þær nema í beina þágu KFUM og KFUK í Vindáshlíð og í samræmi við tilgang þess.

  1. grein: Ráðstöfun eigna

Leggist KFUM og KFUK í Vindáshlíð niður af einhverjum ástæðum skal stjórn KFUM og KFUK á Íslandi ráðstafa eignum þess. KFUM og KFUK í Vindáhlíð getur ekki gengið úr KFUM og KFUK á Íslandi með eignir sínar.

  1. grein: Lagabreytingar

Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi KFUM og KFUK í Vindáshlíð og þarf 2/3 atkvæðisbærra fundamanna til að samþykkja lagabreytingar. Tillögur um lagabreytingar skulu berast stjórn KFUM og KFUK í Vindáshlíð skriflega, eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund starfsstöðvarinnar og þær lagðar fyrir stjórnarfund. Tilkynna skal um þær í aðalfundaboði og skulu þær liggja frammi í aðalstöðvum KFUM og KFUK á Íslandi að minnsta kosti viku fyrir aðalfund. Lagabreytingar sem samþykktar eru á aðalfundi KFUM og KFUK í Vindáshlíð öðlast þó aðeins gildi ef stjórn KFUM og KFUK á Íslandi samþykkir þær.

 

 

Samþykkt á aðalfundi 25.mars 2025

og samþykkt af stjórn KFUM og KFUK á Íslandi 7. apríl 2025.