
Basar KFUK
Laugardagur 28. nóvember 2020 @ 10:00 - 23:30
Jólabasar KFUK hefst 28. nóvember nk. kl. 10:00 á vefsíðunni www.basarkfuk.com
– Við hvetjum alla til að taka þátt!
Jólabasar KFUK verður haldinn með rafrænu sniði þetta árið vegna COVID-19 og þeirra takmarkana sem eru í gildi.
Fyrirkomulagið í ár verður með þeim hætti að sett verður upp netverslun á vefsíðunni www.basarkfuk.com þar sem hægt verður að kaupa fallegar handgerðar vörur. Þá verður einnig tekið við frjálsum framlögum á vefsíðunni.
Basarinn hefst laugardaginn 28. nóvember nk. kl. 10:00 og hvetjum við alla til að hafa hraðar hendur til að næla sér í fallegar handgerðar vörur.
Vefsíðan verður þó opin í viku en henni verður lokað laugardaginn 5. desember kl. 14:00. Hægt verður að velja um að fá vörurnar heimsendar eða sækja þær á Holtaveg 28 á fyrirfram ákveðnum tíma.
Á næstu dögum munum við birta sýnishorn af þeim vörum sem verða til sölu á facebook– og instagramsíðu Basars KFUK.
Við hvetjum alla til að leggja leið sína á www.basarkfuk.com og styðja við félagið!
Upplýsingar
- Dagsetning:
- Laugardagur 28. nóvember 2020
- Tími:
-
10:00 - 23:30
- Viðburðaflokkar:
- AD KFUK, Fullorðinsstarf
- View Event Website
Skipuleggjandi
Staðsetning
- KFUM og KFUK Holtavegur
-
Holtavegur 28
Reykjavík, 104 Iceland + Google Map - Sími:
- 588-8899
- View Venue Website