Laugardaginn 28. júní verður opinn dagur í Vatnskógi frá kl. 14-17.
Þá gefst gestum og gangandi tækifæri á að koma og skoða staðinn og sjá hvað hann hefur upp á að bjóða, kynna sér framkvæmdir við nýja matskálann og njóta þess að vera í skemmtilegu umhverfi með okkar frábæra fólki.
Hægt verður að fara út á báta, fara í hoppukastala, spila fótbolta eða bara rölta um í skóginum.
Tilvalið að fara í bíltúr, koma við í Skóginum og fá sér smá veitingar.
Kaffisala verður á staðnum.
Verð á kaffisölu:
16 ára og eldri – 3.500 kr.
11-15 ára – 2.000 kr.
10 ára og yngri – frítt
Hlökkum til að sjá ykkur!