Laugardaginn 28. júní verður opinn dagur í Vatnskógi frá kl. 14-17.

Þá gefst gestum og gangandi tækifæri á að koma og skoða staðinn og sjá hvað hann hefur upp á að bjóða, kynna sér framkvæmdir við nýja matskálann og njóta þess að vera í skemmtilegu umhverfi með okkar frábæra fólki.

Hægt verður að fara út á báta, fara í hoppukastala, spila fótbolta eða bara rölta  um í skóginum.

Tilvalið að fara í bíltúr, koma við í Skóginum og fá sér smá veitingar.

Kaffisala verður á staðnum.

Verð á kaffisölu:

16 ára og eldri  –   3.500 kr.

11-15 ára       –        2.000 kr.

10 ára og yngri  –  frítt

 

Hlökkum til að sjá ykkur!