Kaffisala Vindáshlíðar
Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin sunnudaginn 25. maí næstkomandi í Vindáshlíð frá kl. 14:00-17:00.
Tilvalið að taka smá forskot á sæluna sem verður í Hlíðinni í sumar og njóta saman á þessum yndislega degi. Sannkölluð sumargleði!
DAGSKRÁ
14:00 Fánahylling
14:10 Fjölskyldumessa í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð.
14:00 – 17:00 Sumargleði og kaffisala
Kaffiveitingar, göngur, FOLF, ratleikur, brennó, hoppukastalar, krap.
VERÐ:
0 til 10 ára: ókeypis
11 til 15 ára: 2000 kr
16 ára og eldri: 3500 kr
Það verður svo æsispennandi ratleikur um alla Vindáshlíð. Allir sem klára ratleikinn fá nafnið sitt í pott og vinningurinn er hvorki meira né minna en gjafabréf í flokk í Vindáshlíð. Hver verður sú heppna?
Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum á sama tíma og maður styrkir starfsemina.
Þessi viðburður veitir nýjum sem og eldri Hlíðarmeyjum, fjölskyldum og vinum tækifæri til að deila sögum og minningum sín á milli í yndislegu umhverfi okkar.
Hlökkum til að sjá ykkur!