Velkomin á vorhátíð í Kaldárseli og til hamingju með hundrað ár, Kaldæingar og velunnarar!  Kaldársel á 100 ára afmæli í ár og býður til hátíðar með fjölbreyttri dagskrá á uppstigningardag, 29. maí, í Selinu góða frá kl. 11:00-16:00.

Klukkan 10 verður hjólað samferða frá Hellisgerði í Kaldársel. Vegalengd 8 km, allt á malbikuðum stígum. Ef að þið hafið áhuga á að hjóla með okkur þá er það velkomið.
Dagskrá í Kaldárseli hefst með fánahyllingu klukkan 11 og í beinu framhaldi mun Þórarinn Björnsson leiða rólega sögugöngu um nærumhverfið.
Boðið verður upp á pylsur og fleira frá klukkan 12 til 16 eða meðan birgðir endast.
Hoppukastalar verða á staðnum og að sjálfsögðu býður náttúran upp á spennandi tækifæri fyrir frjálsan leik.
Klukkan 13 hefst samkoma utanhúss þar sem útvarpsmaðurinn Ásgeir Páll Ágústsson leiðir samsöng og séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir hefur hugvekju.
Klukkan 14 eru tvær gönguferðir áætlaðar, annars vegar á Helgafell og hins vegar í Fosshelli og Valaból.
Innandyra verður nokkrum sinnum yfir daginn flutt erindi um Kaldársel fyrr og nú í máli og myndum. Auk þess rúllar skyggnusýning með myndum frá upphafi starfsins til dagsins í dag og einnig stuttmynd frá 1948.

Við munum hafa mannskap í því að leiðbeina um bílastæði og stuðla að greiðum aðgangi allra gesta að hátíðinni.  Kaldársel er innan vatnsverndarsvæðis en undanþága hefur fengist til að leggja bílum innan við hliðið þennan dag.  Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum bílastæðavarða sem taka á móti ykkur.  Þeim sem treysta sér til að ganga 800 metra að skálanum er bent á bílastæði utan við hliðið.  Enn fremur viljum við hvetja til að sameinast í bíla og að þeir sem geta hjóli á staðinn eftir nýlegum malbikuðum stíg.

 

Nánari upplýsingar um alla dagskrárliði og tilhögun munu birtast á facebook-síðunni „Kaldársel í 100 ár“.
Munum að klæða okkur eftir veðri því samkoma og fleira fer fram utanhúss.
Hátíðin er öllum opin og ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin.
Kaldársel
Kt: 480883-0209
Rnr: 545-26-9111