Fjölskylduflokkur í Vatnaskógi að hausti 27. – 29. september
Fjölskylduflokkur er frábært tækifæri að njóta þess að vera saman í notalegu andrúmslofti.
Í flokknum er boðið upp á afslappaða og uppbyggilega dagskrá.
Starfsmenn Vatnaskógar hugsa vel um þátttakendur, bæði í fæði og dagskrá og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel.
Flokkurinn er opin fyrir alla aldurshópa.
Dagskráin hefst á kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum og miðað er við að fjölskyldur ferðist á einkabílum á staðinn, ekki er boðið upp á rútuferðir.
Verð er 15.500 kr. á mann en frítt er fyrir 6 ára og yngri.
Hámarksverð fyrir fjölskyldu er 45.000 kr.

Skráning fer fram á netinu og er nauðsynlegt að skrá alla fjölskyldumeðlimi.
Greiðslulinkur verður svo sendur á þann sem skráir fjölskylduna.
Athugið að skráningin fer ekki í gegn fyrr en greitt hefur verið fyrir flokkinn.

 

Farangur:
Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best:
Búnað til útiveru, s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt.
Sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta), íþróttaskó og föt til notkunar í íþróttahúsi.
Rúmföt (sæng eða svefnpoka og lak).
Annað sem hver og einn telur nauðsynlegt.

Dagskrá:

 

Dagskráin

Föstudagur 27. september
18:00 Svæðið opnar – Gestir koma sér fyrir
19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
Kvöldhressing

Bænastund í kapellu
Íþróttahúsið opið

 

Laugardagur 28. september
08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
Biblíulestur

Fræðslustund foreldra

Leikstund
Íþróttahúsið opið
Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
Gönguferð
Föndursmiðjan
Íþróttahúsið

Bátar opnir
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
Íþróttir og leikir í íþróttahúsi
Undirbúningur f. hæfileikasýningu á kvöldvöku
Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka
21:00 Frjáls tími
Kvöldhressing
Kvöldganga / Bænastund
Afslöppun í sal Birkiskála

 

Sunnudagur 29. september
Frá kl. 09:00 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
10:30 Útivera
11:45  Lokastund
12:30 Hádegismatur
Brottför