Laugardaginn 9. desember, frá kl. 13:00 til 17:00, verður jólatrjáasala og jólamarkaður í Vindáshlíð, sannkallaður jóladagur!

Heyrst hefur að fallegustu jólatrén séu úr skóginum í Vindáshlíð og er ekkert skemmtilegra en að höggva sitt eigið jólatré í stofuna heima. Spennandi ratleikur verður út um allan skóg, jólasveinarnir verða á stjá, ljúffengar veitingar og stórglæsilegur jólamarkaður þar sem m.a. er hægt að kaupa vinsæla Vindáshlíðarsmákökudeigið til að baka heima, jólakransa, smákökur og annað góðgæti. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Vindáshlíðar: www.vindashlid.is

Hlökkum til að sjá ykkur!