Yfirlýsing frá KFUM og KFUK:
Í nýútkominni bók Guðmundar Magnússonar um ævi sr. Friðriks, stofnanda KFUM og KFUK, kemur fram vitnisburður manns um að sr. Friðrik hafi leitað á hann.
Okkur í forystu KFUM og KFUK er brugðið við að heyra frásögn um að sr. Friðrik hafi brugðist trausti þeirra sem hann starfaði fyrir. Það hryggir okkur meira en orð fá lýst.
Við í KFUM og KFUK viljum hvorki breiða yfir sannleikann né söguna. Ef hægt er að leiða í ljós að stofnandi samtakanna hafi gerst sekur um brot gagnvart börnum, teljum við slíkt uppgjör nauðsynlegt.
Öryggi og velferð barna er í fyrirrúmi í öllu starfi KFUM og KFUK í dag. Við gerum afar strangar kröfur til þeirra sem starfa með börnum og ungmennum á vettvangi samtakanna. Þau sem starfa á okkar vegum þurfa að standast ítarlega bakgrunnsathugun og fá einnig þjálfun og uppfræðslu um siðareglur, barnavernd og mörk í samskiptum.
Hafi einstaklingar orðið fyrir kynferðislegu áreiti eða ofbeldi á vettvangi KFUM og KFUK þá hvetjum við viðkomandi til að tilkynna um það, hversu langt sem liðið er. Það má t.d. gera með því að hafa samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. https://www.samskiptaradgjafi.is/