Karlaflokkur í Vatnaskógi 1. – 3. sept. 2023

 

Helgina 1. – 3. sept. verður karlaflokkur í Vatnaskógi, ætlaður karlmönnum á aldrinum 17-99 ára.

Tilgangur helgarinnar er að styrkja líkama, sál og anda.  Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu fyrir Vatnaskóg.  Andinn og sálin eru styrkt með erindum, biblíufræðslu, bænastundum, kvöldvöku og guðsþjónustu.

Verð á Heilsudaga karla er kr. 16.900. Hægt er að ganga frá skráningu á https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=2084  eða í síma 588-8899.

Föstudagur 1. september
15:15    Golfmót „VATNASKÓGUR OPEN“ (fyrir þá sem vilja).

Leikið verður á Brautarholtsvelli*

Umsjón: Ársæll Aðalbergsson
19:00    Léttur kvöldverður

20:00    Erindi: „Hvernig geta 100 ára félög orðið 200 ára?“

               Dr. Pétur Pétursson

21:30    Frjáls tími
22:00    Kvöldhressing
22:30    Guðsorð fyrir svefninn

Matthías Guðmundsson

23:00    Bænastund í kapellu

23:30    Gengið til náða

Laugardagur 2. september
08:00    Vakið
08:20    Morgunteygjur og fánahylling
08:30    Morgunmatur
09:00     Biblíufræðsla: “Jónas – Kræfur karl og hraustur“

Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson

10:00    Vinna fyrir Vatnaskóg
11:00    „Ellefukaffi“

12:00    Matur
12:30    Höllun
13:00    Vinna fyrir Vatnaskóg
15:30    Kaffi
16:00    Fótboltaleikur á íþróttavelli, slökun í heitupottunum, veiði á vatninu ofl.

19:00    Hátíðarkvöldverður

20:30    Hátíðarkvöldvaka

               Stjórnun:  Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson

               Upphafsorð og bæn: „Vatnaskógur í heila öld“ – Sr. Ólafur Jóhannsson

               Tónlistaratriði

Gengið í Vatnaskóg: Örnólfur, Nói og Kristján

               Vatnaskógur í 100 ár:  Þórarinn Björnsson

Hugleiðing: Dr. Gunnar Jóhannes Gunnarsson

22:30    Kvöldkaffi

23:15    Bænastund í kapellu

Sunnudagur 3. september
09:00    Vakið
09:20    Morgunteygjur og fánahylling
09:30    Morgunmatur

11:00    Guðsþjónusta í Leirárkirkju. 

Sr. Þráinn Haraldsson, sóknarprestur í Garða- og Hvalfjarðarprestakalli

12:30    Matur

13:15    Heimför

 * Á föstudeginum er í boði golfmót fyrir áhugasama. Leiknar verða 9 holur á Brautarholtsvelli. Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt í mótinu hjá: arsaell@kfum.is eða í síma 899-7746. Vallargjald greiðist á staðnum.

 

Vinna í þágu Vatnaskógar – verkefni: 

  1. Byggingarvinna við nýjan matskála
  2. Endurnýja þakjárn Lerkiskála
  3. Endurnýja trjámerkingar í Lærdómslundi
  4. Snyrta gróður í kerjum við Birkiskála
  5. Lækka ræsi við vesturenda Birkiskála
  6. Tiltekt á geymslusvæði
  7. Mörg málningarverkefni ef veður leyfi
  8. Hreinsa þakrennur
  9. Létt inniverkefni
  10. Klippa marg-toppa grenitré
  11. Höggva eldivið
  12. Tína rusl