Hinn árlegi hátíðar og inntökufundur KFUM og KFUK verður fimmtudaginn 7. febrúar í félagsheimili okkar að Holtavegi 28 og hefst kl. 19:00.

Veislumatur og fjölbreytt hátíðleg dagskrá verður í umsjón stjórnar félagsins. Nýir félagar verða boðnir velkomnir við hátíðlega athöfn.

Skráning fer fram á netinu kfum.is eða á skrifstofu félagsins. Hægt er að skrá sig hér: https://sumarfjor.is/Event.aspx?id=16

Á árum áður gengu félagar í Aðaldeildir KfUM og KFUK á þar til gerðum inntökufundum. Ekki var hægt að ganga í félagið neinn annan dag. Nú eru nýir félagar skráðir allt árið um kring. Við höldum þó í þann góða sið að efna til veislufundar til að bjóða nýja félaga velkomna.