Næsta sunnudag, 14. maí kl. 16, heldur Karlakór KFUM vortónleika sína í Skálholtskirkju. Yfirskrift tónleikanna er Heyr, himna smiður sem er tilvitun í sálm eftir Kolbein Tumason. Sálmurinn er elsti varðveitti sálmur Norðurlanda og gjarnan sunginn við lag Þorkels Sigurbjörnssonar. Það verður ánægjulegt að heyra Karlakór KFUM syngja þennan sálm ásamt fleiru sem á efnisskránni verður. Laufey G. Geirlaugsdóttir er stjórnandi kórsins og Ásta Haraldsdóttir leikur á píanó. Miðar fást hjá kórfélugum eða við innganginn og kosta 2000 kr.