Á þriðjudaginn 24. apríl kl. 17:30 er komið að lokafræðslukvöldi æskulýðssviðs KFUM og KFUK á þessu misseri. Að þessu sinni er yfirskriftin: “Samfélag trúaðra – hvað er kirkja?” Fræðslukvöldið verður á Holtavegi 28, Reykjavík.

Umsjón með fræðslukvöldunum hafa þeir Jón Ómar Gunnarsson æskulýðsprestur KFUM og KFUK, og Halldór Elías Guðmundsson æskulýðsfulltrúi félagsins.

Æskulýðssvið KFUM og KFUK hefur boðið upp á  fræðslukvöld yfir vetrarmánuðina (september-desember og janúar-apríl) undir yfirskriftinni „Viltu vita meira?“ Á samverunum er glímt við hugtök og hugmyndir kristinnar trúar á opin og skemmtilegan hátt. Boðið verður upp á veitingar, en samveran stendur yfir í um tvær klukkustundir.

Allir eru velkomnir á fræðslusamveruna.