Í kvöld, þriðjudaginn 17.apríl verður síðasti hefðbundni fundur vetrarins hjá AD KFUK haldinn, í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20.

Efni fundarins er: „Þrep til velsældar – líkami, sál og andi“ í umsjá Ragnheiðar Grétarsdóttir, jógakennara. Ragnheiður Sverrisdóttir hefur hugleiðingu og María Aðalsteinsdóttir mun stjórna fundinum. Boðið verður upp á kaffi og kaffiveitingar í lok fundar.

Allar konur eru hjartanlega velkomnar á fundinn.