Vinsamlega athugið að enginn fundur er hjá AD KFUM fimmtudaginn 5. apríl, skírdag.
Efnið sem áður hafði verið auglýst, „Réttarhöldin yfir Jesú skoðuð frá sjónarhóli lögfræðinnar“ í umsjá Davíðs Arnar Sveinbjörnssonar, lögfræðings, færist til fimmtudagsins 12. apríl. Hugvekju flytur Sveinbjörn Gizurarson, lyfjafræðingur og stjórnun fundarins verður í höndum Ársæls Aðalbergssonar.
Samkvæmt Dagskrá var vorferð áætluð á þessum degi, fimmtudeginum 12. apríl, en henni hefur verið frestað.
Allir karlmenn eru hjartanlega velkomnir.