Vatnaskógur - panorama

Aðalfundur Skógarmanna KFUM verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 29. mars kl. 20:00 í húsi KFUM og KFUK Holtavegi 28, Reykjavík.

Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf, fréttir verða fluttar af málefnum Vatnaskógar og boðið verður upp á kaffiveitingar.

Allir fullgildir félagmenn KFUM og KFUK á Íslandi eru velkomnir og hafa rétt á að taka þátt í aðalfundarstörfum óháð búsetu eða kyni.