Í kvöld, þriðjudaginn 13. mars, fer aðalfundur Vindáshlíðar fram í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, kl.20. Fundurinn fer fram í kaffiteríu hússins.

Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf. Allir félagsmenn í KFUM og KFUK á Íslandi eru formlega boðnir á fundinn og eru velkomnir.

Vegna fundarins fer ekki hefðbundinn AD KFUK-fundur fram í kvöld líkt og önnur þriðjudagskvöld, en að sjálfsögðu eru AD KFUK-konur boðnar hjartanlega velkomnar og hvattar til að sækja fundinn.