Vinsamlega athugið að fimmtudaginn 8. mars verður ekki hefðbundinn fundur hjá AD KFUM í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi líkt og aðra fimmtudaga yfir vetrartímann.

Kristniboðssamkoma verður þetta sama kvöld kl. 20 í Dómkirkjunni í Reykjavík, í tilefni Kristniboðsviku Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Efni samkomunnar er: „Friður sem eflir samfélagið“, og ræðumaður verður Skúli Svavarsson.

Boði verður upp á kaffi og kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir.