Árshátíð Vindáshlíðar verður haldin laugardaginn 4. febrúar kl. 13.00-15.00. í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 í Reykjavík.  Árshátíðin er fyrir stelpur sem dvöldu í flokki í Vindáshlíð sumarið 2011.  Á árshátíðinni verður fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.   Boðið verður upp á veitingar.  Miðinn á árshátíðina kostar 500 krónur og gildir jafnframt sem happdrættismiði þar sem fyrsti vinningur er vikudvöl í Vindáshlíð sumarið 2012. Hlökkum til að sjá þig! Starfsmenn Vindáshlíðar.