Næsta föstudag, 3.febrúar, er fyrsti fundur Skógarvina nú á vormisseri 2012.Skógarvinir eru hópur drengja á aldrinum 12-14 ára sem taka þátt í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK með sérstakri áherslu á Vatnaskóg. Dagskráin í vor er skemmtileg og sést hér fyrir neðan. Skógarvinir hittast alls fimm sinnum í vor.

Dagskráin hefst kl. 17:00 á föstudögum, en mæting er í hús KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík.

Þátttökugjald er 9.500 kr., en innifalið í þeirri upphæð eru ferðir, matur og gisting. Skráning er hafin og er í fullum gangi í síma 588-8899 og einnig á skraning.kfum.is. Aðeins 25 drengir komast að í Skógarvini.

Dagskrá Skógarvina vorið 2012:

3. febrúar

Skógarmannafundur á Holtavegi: Uppbygging í Vatnaskógi kynnt.

Farið í leiki – Síðdegishressing – Dagskrá lýkur kl. 19:00.

17. febrúar

Rúv/ Sportið: Heimsókn á Rúv til Þorkels Gunnars íþróttafréttamanns.

Síðdegishressing – Mæting á Holtaveg og heimkoma á sama stað um kl. 19:00.

2. mars

Hellaskoðun: Raufarhólshellir skoðaður

Vinsamlega komið með vasaljós og hjálm

Kvöldmatur – Heimkoma á Holtaveginn um kl. 20:30.

16.- 17. mars

Ferð í Vatnaskóg:

Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnir takast

á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi á óvenjulegum tíma.

Heimkoma á laugardeginum kl.14:00.

30. mars

Laser tag

Lindakirkja heimsótt – Kvöldmatur

Dagskrá lýkur kl. 21:00.

Umsjónarmenn Skógarvina vorið 2012 eru:

Ársæll Aðalbergsson 50 ára

Benedikt Snær Magnússon 22 ára

Styrmir Magnússon 36 ára

Þór Bínó Friðriksson 25 ára.

Skógarmenn – Áfram að markinu!