Í dag, miðvikudaginn 18. janúar kl.17 hefst Gítarnámskeið KFUM og KFUK í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, á vorönn.

Námskeiðið er í alls 8 skipti (klukkustund í senn) og er bæði ætlað fyrir byrjendur, og einnig þá sem kunna eitthvað fyrir sér á hljóðfærið. Kennari námskeiðsins er Hannes Þ. Guðrúnarson, gítarkennari í Tónlistarskóla Kópavogs og tónlistarmaður.

Skráning er enn í fullum gangi hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og á netfanginuskrifstofa(hjá)kfum.is.

Leiðtogum í æskulýðsstarfi KFUM og KFUK býðst að sækja námskeiðið án endurgjalds, en almennt námskeiðsgjald er kr.14.500.

Allir sem eru áhugasamir og hafa gaman að tónlist eru hvattir til að sækja námskeiðið. Gítartónlist hefur gegnum árin nýst vel í starfi KFUM og KFUK, bæði í sumar-og vetrarstarfi.

Nánari upplýsingar um gítarnámskeiðið er hægt að fá í síma 588-8899.