Í kvöld, þriðjudaginn 18.október verður að venju haldinn fundur hjá AD (aðaldeild) KFUK í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík, kl.20.
Fundurinn í kvöld helgast af 70 ára afmæli Kristniboðsflokks, sem haldið er upp á um þessar mundir.
Kristín Möller mun byrja fundinn með orði og bæn. Guðfinna Guðmundsdóttir mun svo segja frá stofnun Kristniboðsflokksins og Vilborg Jóhannesdóttir mun lesa sögur frá tveimur Kristniboðsþingum. Að sögn KFUK-kvenna verða þetta örugglega skemmtilegar og uppbyggilegar frásögur frá því „í gamla daga“.
Katrín Guðlaugsdóttir kristniboði verður með hugleiðingu. Stjórnun fundarins er í höndum Margrétar Möller.
Boðið verður upp á kaffi og kaffiveitingar Kristniboðsflokkskvenna og mun allir ágóði renna til Kristniboðsins, og eru frjáls framlög vel þegin.
Allar konur, yngri sem eldri, eru hvattar til að fjölmenna á fundinn.