Helgina 21.-23. október verður samráðsþing KFUM og KFUK á Íslandi haldið í Vatnaskógi.
Undanfarin ár hefur það orðið að föstum lið hjá félaginu að halda samráðsþing stjórna og starfsstöðva félagsins að hausti til. Við þetta tækifæri koma saman stjórn KFUM og KFUK á Íslandi og stjórnir starfsstöðva félagsins á landinu, skipulagshópar og starfsfólk Þjónustumiðstöðvar að Holtavegi, ráða ráðum sínum og vinna að skipulagningu starfs félagsins fyrir árið 2012.
Nánari upplýsingar um samráðsþingið veitir starfsfólk Þjónustumiðstöðvar í síma 588-8899.