Nú með haustinu er verkefnið Jól í skókassa farið á fullt skrið, líkt og undanfarin sjö ár.
Sem fyrr gengur verkefnið út á að fá fólk á öllum aldri til að útbúa og gefa skókassa með jólaglaðningi fyrir fátæk og munaðarlaus börn í Úkraínu.
Tekið er á móti skókössum virka daga milli kl.9 og 17 í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík. Nokkrir fallega innpakkaðir skókassar með jólagjöfum hafa þegar borist þangað.
Leiðbeiningar um það hvernig útbúa skal skókassana er að finna á síðunni www.skokassar.net . Í ár er sérstaklega óskað eftir stökum prjónavörum á borð við vettlinga, húfur, sokka, og trefla sem gjafa til verkefnisins.
Síðustu ár hafa fjölmargir tekið þátt í Jól í skókassa, og þúsundir skókassa með jólagjöfum hafa verið sendir með gámi til Úkraínu. Fulltrúar úr umsjónarhóp verkefnisins, Biblíuleshópnum Bleikjunni, hafa fylgt gjafagámnum eftir og séð um afhendingu kassanna til bágstaddra, m.a. munaðarlausra barna, á sjúkrahúsum og á fleiri stöðum. Í ár verður verkefnið með sama hætti.
Lokaskiladagur verkefnisins í ár er laugardagurinn 12. nóvember í Reykjavík, og lokaskiladagur á landsbyggðinni er laugardagurinn 5. nóvember. Upplýsingar um móttökustaði víðs vegar um landið verða aðgengilegar von bráðar á heimasíðunni www.skokassar.net .
Gjafir sem hafa safnast í Jól í skókassa – verkefninu gegnum árin hafa glatt ótal bágstödd börn í Úkraínu. Allir eru hvattir til að vera með í þessu góða framtaki!
Nánari upplýsingar um Jól í skókassa má fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og á www.skokassar.net.