Helgina 16. – 18. september verða Heilsudagar karla haldnir í Vatnaskógi.
Heilsudagar eru ætlaðir körlum á aldrinum 17-99 ára. Tilgangur þeirra er að styrkja líkama, sál og anda. Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu í þágu Vatnaskógar. Andinn og sálin eru styrkt með fræðslu, erindum, bænastundum, kvöldvöku og messu. Verð á Heilsudaga karla er kr. 7.900. Hægt er að ganga frá skráningu á http://skraning.kfum.is eða í síma 588-8899.
Dagskrá Heilsudaga 2011:
Föstudagur 16. september
16:00 Golfmót: „VATNASKÓGUR OPEN" Leikið verður á Þórisstöðum* (fyrir þá sem vilja) – Umsjón: Jón Ómar Gunnarsson og Þorsteinn Arnórsson
19:00 Léttur kvöldverður
20:00 Erindi – „Sigurðarglíman“: Sigurður A. Magnússon rithöfundur
21:30 Hreyfing: Innibolti, göngutúr, borðtennis, skák…
23:00 Kvöldhressing
23:30 Guðsorð fyrir svefninn – sr. Jón Ómar Gunnarsson
24:00 Bænastund í kapellu
00:30 Gengið til náða

Laugardagur 17. september
08:00 Vakið
08:20 Müllersæfingar og fánahylling
08:30 Morgunmatur
09:00 Biblíulestur – sr. Sigurður Pálsson
10:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
11:00 "Ellefukaffi"
12:00 Matur
12:30 Höllun
13:00 Vinnutími í þágu Vatnaskógar
15:30 Kaffi
16:30 Fótboltaleikur, slökun í heitu pottunum ofl.
19:00 Hátíðarkvöldverður
20:30 Hátíðarkvöldvaka
– Söngur Langholtsdætur
– Hugvekja: sr. Guðmundur Karl Brynjarsson
22:30 Kvöldkaffi

Sunnudagur 18. september
09:00 Vakið
09:20 Müllersæfingar og fánahylling
09:30 Morgunmatur
10:00 Gönguferð á Saurbæ
10:30 Skoðunarferð um sögustaði sr. Hallgríms Péturssonar
11:00 Messa í Hallgrímskirkju – sr. Kristinn Jens Sigurþórsson
12:30 Hádegismatur
14:00 Heimferð

*Á föstudeginum verður í boði golfmót fyrir áhugasama. Leikið verður á golfvelli Þórisstaða sem er næsti bær til austurs við Vatnaskóg.
Tilkynna þarf sérstaklega ef menn hyggjast taka þátt í golfmótinu hjá: jonomar(hjá)kfum.is eða í síma 866-7917.
Vallargjald kr. 1.500.- þarf að greiða sérstaklega.
Dagskráin gæti tekið breytingum þegar nær dregur Heilsudögum

Vinna í þágu Vatnaskógar
1. Viðgerð á tréverki umhverfis hlaupabraut.
2. Illgresi hreinsað af hlaupabraut.
3. Skógur grisjaður, eldiviður höggvinn.
4. Vinna við nýja flöt?
5. Fjaran hreinsuð?
6. Trjásnyrtingar, fíflastungur o.fl.
7. Vinna við Birkiskála II ?
8. Setja upp handrið við aðalinngang gamla skála
9. Smíða grindverk/sæti við anddyri íþróttahúss
10. Línuhappdrætti Skógarmanna, aðstoð við útdrátt.

Skógarmenn KFUM -Vatnaskógi
Ársæll Aðalbergsson
Framkvæmdastjóri
Holtavegi 28,
104 Reykjavík
s. 588-8899