Komið þið sæl hér eru fyrstu fréttir beint úr Vatnaskógi en bilun í netþjóni orsakaði töf á fréttum, beðist er velvirðingar á því.
Nú er þriðji flokkur Vatnaskógar kominn á fulla ferð. Það eru 90 drengir voru skráðir í flokkinn og allir mættir. Margir eru að koma í fyrsta skipti. Á morgun fá þeir sæmdarheitið Skógarmenn en það kallast þeir sem dvalið hafa í tvær nætur í Vatnaskógi. Flokkurinn gengur vel og frábær stemming í hópnum, mikið um að vera og drengirnir una sér mjög vel við hin ýmsu viðfangsefni. Smíðastofan, knattspyrna, íþróttir og ýmsar skógarferðir eru vinsælustu viðfangsefnin. Bátar voru lánaðir í gær er norð- austan strengurinn gerði mönnum erfitt fyrir og voru bátarnir lokaðir í dag.
Maturinn: Í gær þriðjudag var boðið upp á kjúklinganagga í hádegismat og í kvöldmat var pylsupasta með heitu brauði. Í dag var boðið uppá Cherios, Corn Flex og LÝSI (fyrir þá sem vilja – ótrúlega vinsælt) í morgunmat. Í hádegismat er boðið upp á plokkfisk, í kvöldmat var ljúfeng súpa og brauð.
Starfsmenn: Forstöðumaðurinn (undirritaður) heitir Ársæll Aðalbergsson (f. 1962) og starfar sem framkvæmdastjóri Vatnaskógar. Aðrir foringjar (en svo heita þeir sem sinna drengjunum beint) eru: Sigurður Pétursson (f. 1969), Baldur Ólafsson (f. 1969), Sigurður Jón Sveinsson (f. 1991), Bogi Benidiktsson (f. 1988), Gísli Guðlaugsson (f. 1989), Ólafur Jón Magnússon (f. 1991), Gunnar Thomas Guðnason (f. 1969).
Aðrir stafsmenn sem sinna viðhaldi ofl. eru: Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson (f. 1989), , Hákon Arnar Jónsson (f. 1991) og Þórir Sigurðsson (f. 1944).
Í eldhúsi, þrifum ofl. eru 6 manns undur stjórn Valborgar Rutar Geirsdóttur (f. 1987). Auk þeirra eru nokkrir sjálfboðaliðar sem aðstoða við hin ýmsu verk.
Dagskráin: Vakið er klukkan 8:30 og morgumatur kl. 9:00, síðan er fánahylling og biblíulestur og síðan frjáls tími þar sem drengirnir geta valið hvaða viðfangsefni þeir vilja. Hádegismatur er kl. 12:00, síðdegiskaffi kl. 15:00, kvöldmatur kl. 18:00 og kvöldhressing klukkan 20:30 og síðan kvöldvaka og eftir hana er farið í svefn sem er um eða uppúr kl. 22:00.
Bestu kveðjur úr Vatnaskógi (Nokkuð sterkur norðan vindur sól og hiti um 14°).

Hér eru fyrstu myndir úr flokknum. Ársæll