Verndum þau – námskeið verður haldið þann. 25. maí n.k. í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28, Reykjavík. Námskeiðið er ætlað starfsfólki sumarbúðanna og öllum sem koma að uppeldi og umönnun barna og ungmenna. Á því er fjallað um hvernig bregðast skal við grun um hvers kyns ofbeldi eða vanrækslu í garð barna og ungmenna.
Námskeiðið hefst kl. 17:00 og stendur í þrjár klukkustundir. Boðið verður upp á ljúffengan kvöldverð.
Námskeiðið eru byggt á efni bókarinnar Verndum þau. Það eru höfundar bókarinnar, Verndum þau, sem stýra námskeiðinu; þær Ólöf Ásta Farestveit sem er uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir sem er með MS í sálfræði. Þær starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Námskeiðið er öllum opið og að kostnaðarlausu.
Skráning fer fram í síma 588-8899 eða á netfangið namskeid@kfum.is
Það er mikilvægt að það starfsfólk sumarbúða KFUM og KFUK sem ekki komst á Verndum þau – námskeiðið sem haldið var í apríl s.l. sæki þetta námskeið.

Nánari lýsing á umfjöllunarefni námskeiðanna:

Flest börn á Íslandi búa við öruggt og friðsælt umhverfi, heima, í skóla, leik- og frístundastarfi. Því miður er ekki hægt að segja að þetta eigi við um öll börn hér á landi. Það er töluverður fjöldi barna sem á erfitt og býr við vanrækslu eða eru beitt ofbeldi – líkamlegu, kynferðislegu og eða andlegu. Það er því mikilvægt að þeir sem starfa með börnum og unglingum þekki einkenni ofbeldis og vanrækslu gagnvart börnum og hvernig eigi að bregðast við ef grunur vaknar um að slíkt eigi sér stað. Námskeiðið Verndum þau er ætlað öllum þeim sem koma að uppeldi og umönnun barna og ungmenna. Námskeiðið eru byggt á efni bókarinnar Verndum þau.