Æskulýðsvettvangurinn í samvinnu við Mennta – og menningarmálaráðuneytið hefur farið af stað með röð af námskeiðum sem kallast Verndum þau.
Námskeiðin eru ætluð þeim sem koma að uppeldi og umönnun barna og ungmenna. Námskeiðið er einnig tilvalið fyrir kennara og þá sem starfa að barnaverndarmálum. Höfundar bókarinnar Verndum þau, stýra námskeiðinu, þær Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, B.A. í sálfræði. Þær starfa báðar í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.
Næsta námskeið af Verndum þau verður haldið þriðjudaginn 8. mars næstkomandi á Sauðárkróki, í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, í auditorium – sal á neðri hæð, kl. 17-19-30. Námskeið er öllum að kostnaðarlausu.
Skráning á námskeiðið fer fram hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 eða á netfanginu namskeid(hjá)kfum.is .
Flest börn á Íslandi búa við öruggt og friðsælt umhverfi, heima, í skóla, leik- og frístundastarfi. Því miður er ekki hægt að segja að þetta eigi við um öll börn hér á landi. Það er töluverður fjöldi barna sem á erfitt og býr við vanrækslu eða eru beitt ofbeldi – líkamlegu, kynferðislegu og eða andlegu. Það er mikilvægt að þeir sem starfa með börnum og unglingum þekki einkenni ofbeldis og vanrækslu gagnvart börnum og hvernig eigi að bregðast við ef grunur vaknar um að slíkt eigi sér stað.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags Íslenskra Skáta (BÍS) KFUM og KFUK á Íslandi og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).