Sunnudagssamkoma verður í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík í kvöld, sunnudaginn 27. febrúar. Yfirskrift samkomunnar, sem er bænasamkoma, er ,,Orð Guðs vinnur verk sitt".
Þau Laura Sch. Thorsteinsson og Kristján Sigurðsson gefa vitnisburði sína. Rúna Þráinsdóttir annast undirleik og Arna Ingólfsdóttir stjórnar samkomunni. Sælgætissala KSS-inga verður að venju opin að samkomu lokinni og gestir eru hvattir til að staldra við og eiga saman góða stund. Tilvalið er að hefja vikuna á góðri kyrrðarstund á bænasamkomu.
Allir eru hjartanlega velkomnir.