Nú um helgina, 11. til 13. febrúar verður fjölskylduflokkur haldinn í Vatnaskógi. Flokkurinn er opinn öllum aldurshópum og verður með skemmtilegu sniði og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í fjölskylduflokk er gott að verja góðum stundum í frábæru umhverfi og notalegu andrúmslofti, og þar gefst kjörið tækifæri til að efla fjölskyldutengsl og eiga góðan tíma saman. Gert er ráð fyrir því að hver fjölskylda geti notið tímans í Vatnaskógi á eigin forsendum í bland við afslappaða og uppbyggilega dagskrá (sjá hér fyrir neðan).
Verð í flokkinn er kr. 7.900 fyrir manneskju, en frítt er fyrir 6 ára og yngri. Hámarksverð fyrir fjölskyldu er kr. 27.500.
Skráning í fjölskylduflokkinn er nú í fullum gangi og fer fram í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í síma 588-8899.
Stjórnendur flokksins verða þeir Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastjóri Vatnaskógar og séra Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur í Útskálaprestakalli.
Upplýsingar:
Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best. Rétt er að hafa meðferðis búnað til útiveru s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, stuttbuxur, sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta) og íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem hver og einn telur nauðsynlegt. Einnig þarf að vera með svefnpoka eða sæng (og rúmföt og lak).
Mæting er í Vatnaskóg milli kl. 18:30 og 19:00 föstudaginn 11. febrúar. Dagskráin hefst formlega með kvöldverði kl. 19.00. Reiknað er með að þátttakendur ferðist á einkabílum á staðinn. Ekki verða rútuferðir.
Nánari upplýsingar má fá hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899.

Dagskrá helgarinnar:
Föstudagur 11. febrúar
19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
– Bænastund í kapellu
– Íþróttahúsið opið
– Matsalurinn opinn

Laugardagur 12. febrúar
08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
-Biblíulestur
-Fræðslustund foreldra
-Leikstund
-Íþróttahúsið opið
-Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
– Gönguferð
– Stuttmyndagerð
– Föndursmiðjan
– Íþróttahúsið opið
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
– Kassabílar
– Frjálsar íþróttir
– Íþróttahátíð í íþróttahúsi
– Undirbúningur fyrir hæfileikasýningu á kvöldvöku
– Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka
21:00 Kvöldganga (stutt ganga sem endar í Kapellunni með bænastund)
21:00 Matsalurinn opinn fram eftir kvöldi

Sunnudagur 13. febrúar
Frá kl. 09:30 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
11:00 Útivera
12:00 Fjölskylduguðsþjónusta
Umsjón: Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
13:00 Hádegismatur
14:00 Brottför

Fjölskylduflokkur er tilvalinn fyrir fjölskyldur stórar sem smáar til að:
– njóta þess að vera saman
– fara í gönguferðir í fallegu umhverfi
– leika sér í íþróttum og leikjum
– vera með á Skógarmannakvöldvökum
– taka þátt í fræðslustundum
– skapa í listasmiðjunni