Það verður leiðtogahelgi 28.-30. janúar 2011 í Vatnaskógi.
Á helginni verður farið í gegnum leiðtogaþrep 2 og 3 fyrir (aðstoðar)leiðtoga á aldrinum 15 – 17 ára. Á helginni verður fjallað um leiðtogann og leiðtogahlutverkið hjá KFUM og KFUK, farið verður í marga skemmtilega leika og ýmis verkefni leyst á skemmtilegan hátt einnig verður góð trú – og biblíufræðsla. Námskeiðið er tvískipt og er hugsað bæði fyrir þá sem áður hafa verið á leiðtogahelgi og þá sem aldrei hafa verið. Það verða 36 þátttakendur.
Það verður samvera með Ragnari Schram – „Að þora að kannast við Krist!“
á laugardeginum. Samveran er kl. 17:00 og boðið verður upp á skutl frá Holtaveginum kl. 15.30. Eftir samveruna er boðið upp á að vera með í hátíðarmatnum fyrir 1000 kr.

KFUM og KFUK minnir á:
Febrúarnámskeið KFUM og KFUK og Kirkjunnar – Sjálfmyndin og samfélagið

Leiðtoganámskeið verður að haldið í Grensáskirkju laugardaginn 5. febrúar frá kl. 9.00- 16.00.
Hið víðfræga Viðeyjar,- Sólheima,- Hafnarfjarðarnámskeið, sem nú verður haldið í Grensáskirkju er fjölmennasta námskeiðið sem haldið er fyrir fólk í kristilegu æskulýðsstarfi á Íslandi. Að þessu sinni ætlum við að velta fyrir okkur sjálfsmynd unglinga í dag og hverjir eru helstu áhrifavaldarnir í lífi þeirra (með sérstakri áherslu á kynlíf og kynímynd). Við munum velta fyrir okkur hvernig við getum á sem besta hátt miðlað til unglinganna þeirri jákvæðu sjálfsmynd sem að trúin getur fært okkur. Gígja Grétarsdóttir skólahjúkrunarfræðingur mun ræða um kynímynd og sjálfsmynd unglinga. Halla Jónsdóttir mun fræða okkur um hvernig við getum styrkt sjálfsmynd unglinga í kristilegu æskulýðsstarfi. Eftir hádegi verður aldurskipt í umræðuhópa, boðið verður upp góðan mat, gott samfélag og síðast en ekki síst mun dagskráin enda með magnaðri U2 messu þar sem hljómsveitin Labbakútarnir spilar.

Verð er 3000 kr., en KFUM og KFUK greiðir fyrir sína leiðtoga.
Skráning fer fram á jonomar(hjá)kfum.is síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 3. Febrúar kl. 13.03