Nú fer að líða að síðustu forvöðum að festa kaup á fallegum og vönduðum munum á góðu verði af Basar KFUK sem var haldinn í lok nóvember.
Handgert jólaskraut, bókamerki, ýmis falleg prjónavara fyrir börn og fullorðna, handklæði, dúkar, hitaþófar, marmelaði og sulta er á meðal þess sem er til sölu í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík í þessari viku.
Þessir fallegu og skemmtilegu munir eru tilvaldir til jólagjafa fyrir alla aldurshópa.
Allur ágóði af sölu basarvarningsins rennur til starfsemi KFUM og KFUK á Íslandi.
Verið hjartanlega velkomin í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28.