Jólasýning KFUM og KFUK verður haldin laugardaginn 4. desember næstkomandi kl. 14:00-16:00 í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28.
DAGSKRÁIN:
14:00 – Leikskólabörn úr Vinagarði.
14:20 – Fjöllistahópurinn Ten Sing.
14:45 – Jólasveinar.
15:00 – HLÉ, veitingar í boði.
15:15 – Tilviljun?
15:30 – Töframaður.
15:40 – Jólasaga.
15:50 – Hugvekja.
Þeir sem troða upp á sýningunni eru félagar KFUM og KFUK á Íslandi. Atriðin hæfa öllum aldurshóp, sýningin býður upp á dans, söng, töfrabrögð, leiklist og tónlist. Sýningin er tækifæri til þess að sjá það listafólk og þá liststarfsemi sem er starfandi í félaginu, njóta jólaundirbúningsins og til þess að láta gott af sér leiða. Í hléi verður boðið upp á veitingar, þ.e. heitt súkkulaði og piparkökur sem Hópur til Góðs stendur fyrir en hópurinn ber yfirskriftina: „Vegna kúgunar lítilmagnanna, vegna andvarpa hinna fátæku rís ég nú upp,“ segir Drottinn, „og hjálpa þeim sem þjakaðir eru.“ (Sálmur 12:6).
Jólasveinar koma í heimsókn og gefa börnum góðgæti úr poka sínum.
Aðgangseyrir 1.000 kr. og rennur allur ágóðinn í jólasjóð fyrir langveik börn.
Frítt inn fyrir börn 6 ára og yngri.
Það eru allir hjartanlega velkomnir á Jólasýningu KFUM og KFUK!