Námskeiðið Verndum þau verður haldið þriðjudaginn 23.nóvember næstkomandi kl.17-20 í Lindakirkju í Kópavogi, á vegum Æskulýðsvettvangsins (BÍS, UMFÍ og KFUM og KFUK á Íslandi.
Námskeiðið er opið öllum. Skráning fer fram hjá Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 virka daga fram að námskeiðinu (opnunartími er frá kl.9 til 17).
Verndum þau – námskeiðið fjallar um alla þætti barnaverndarmála, til dæmis vanrækslu og ofbeldi gegn börnum, auk þess sem gerð er grein fyrir ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins. Námskeiðið hefur verið haldið nokkrum sinnum áður síðastliðin ár við góðan orðstír.
Námskeiðið er mikilvægt fyrir þau sem starfa með börnum og unglingum á vettvangi tómstunda- og æskulýðsstarfs. Það hjálpar starfsfólki að vera meðvitað um skyldur sínar og ábyrgð í starfi, að geta lesið í vísbendingar um hvort um vanrækslu eða ofbeldi sé að ræða gegn börnum heima fyrir, í skóla eða annars staðar og að vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum. Allir leiðtogar og starfsmenn KFUM og KFUK sem starfa með börnum og unglingum og hafa ekki farið á umrætt námskeið, eru tvímælalaust hvattir til þess að láta þetta tækifæri til þess ekki fram hjá sér fara.

Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur, leiðir námskeiðið.