Undanfarna tvo daga hefur verið bilun í tölvupóstkerfi Þjónustumiðstöðvar KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík. Því hefur starfsfólk hvorki getað móttekið né sent tölvupósta til aðila utan Þjónustumiðstöðvar.
Athygli er vakin á því að tilkynna má erindi sem ekki þola bið í síma 588-8899 á afgreiðslutíma, frá kl.9 til 17.
Unnið er að viðgerð á þessari bilun, og von er á að tölvupóstkerfið komist í eðlilegt horf sem allra fyrst.
Starfsfólk Þjónustumiðstöðvar KFUM og KFUK biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.