Í kvöld, þriðjudag 26.október, verður fundur kl. 20 hjá Aðaldeild (AD) KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík.
Yfirskrift fundarins er að þessu sinni ,,Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð“, og Biblíulestur verður í umsjá séra Petrínu Mjallar Jóhannesdóttur. Eftir að dagskrá fundarins lýkur verða kaffiveitingar og kaffi til sölu gegn vægu verði, og eru fundargestir hvattir til að staldra við og eiga saman góða og notalega stund. Allar konur eru hjartanlega velkomnar.
AD stendur fyrir ,,Aðaldeild“, og er hluti af fullorðinsstarfi KFUM og KFUK á Íslandi. Rík og áralöng hefð er fyrir AD KFUK-fundum, sem eru fundir fyrir konur.
Fundir AD KFUK eru öll þriðjudagskvöld í vetur í félagshúsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík kl.20. Allar konur, á öllum aldri, eru hjartanlega velkomnar á fundina.
Nánari upplýsingar um AD-starf er að finna hér: www.kfum.is/ad-og-fjolskyldustarf/

,,Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda“. (Sálm. 51:12).