Næstkomandi sunnudagskvöld, þann 10. október, verður önnur samkoma vetrarins í húsi KFUM og KFUK að Holtavegi 28 í Reykjavík.
Yfirskrift samkomunnar er: „Kannt þú að búa við skort/allsnægtir“ og ræðumaður kvöldsins er æskulýðsprestur KFUM og KFUK Jón Ómar Gunnarsson. Gleðisveitin sem skipuð hæfileikafólki úr KFUM og KFUK sér um skemmtilegan tónlistarflutning. Eftir að samkomu lýkur verður sælgætis – og kaffisala á vegum KSS opin.
Í vetur verða sunnudagssamkomur á Holtavegi 28, hvern sunnudag kl.20. Fjölbreyttur hópur ræðumanna mun á samkomum vetrarins fjalla um Guðs orð út frá ýmsum sjónarhornum og lífleg tónlist er á hverri samkomu. Samkomurnar eru hugsaðar sem vettvangur til að eiga notalega og uppbyggjandi stund í vönduðu umhverfi. Það er stór hópur félagsfólks sem kemur að undirbúningi og framkvæmd hverrar samkomu; skipuleggjendur, tónlistarfólk, tæknimenn, ræðumenn, samkomuþjónar og gestir.
Það er gott að hefja vikuna á góðri stund með þessum hætti.
Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir á samkomur hjá KFUM og KFUK.