Skógarvinir er deild fyrir stráka á aldrinum 12-14 ára sem vilja tengjast Vatnaskógi.
Í haust munu Skógarvinir KFUM hittast alls fimm sinnum, á föstudögum kl.17. Tveir af þessum fundum fela í sér ferð í Vatnaskóg, með tilheyrandi ævintýrum. Sjá nánar í dagskrá Skógarvina hér fyrir neðan.
Allir fundirnir hefjast og enda í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 í Reykjavík.
Í Skógarvinum verður í boði spennandi dagskrá, ýmsar uppákomur og fjör, þar sem strákar skemmta sér saman að hætti Vatnaskógar.
Umsjónarmenn Skógarvina haustið 2010 eru: Styrmir Magnússon (35 ára), Björn Orri Sæmundsson (17 ára), Davíð Arnar Sigvaldason (16 ára) og Þorbergur Rúnarsson (20 ára).
Skráning í Skógarvini hefst mánudaginn 20.september kl. 9:00 og fer fram bæði í síma 588-8899 og á skráningarsíðu KFUM og KFUK, hér: http://skraning.kfum.is/
Athugið að aðeins 30 drengir komast að í Skógarvini.
Þátttökugjald er kr. 8000. Allar ferðir, matur og annað efnisgjald er innifaldið í þátttökugjaldi. Hægt er að ganga frá greiðslu í síma 588-8899 eða með staðgreiðslu í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK að Holtavegi 28.
Dagskrá Skógarvina haustið 2010 :

24. sept. Kvöldferð í Vatnaskóg.

Skógarhögg, kvöldverður, leikir í í íþróttahúsi og kvöldvaka. Heimkoma kl. 22.30. Í ferðina þurfa strákarnir að vera vel klæddir eftir veðri, og með húfu og vettlinga meðferðis.

8. okt. Vatnaskógarforingjar bregða á leik:

Leikrit, brandarar og leikir, svaka fjör. Dagskrá lýkur um kl.18.30.

22. okt. Borgarleikhúsið heimsótt.

Skoðunarferð um leikhúsið. Heimkoma á Holtaveg 28 klukkan rúmlega 19.


5. nóv. Aðalstöðvar KSÍ í Laugardal heimsóttar.

Pylsupartý á eftir á Holtaveginum. Dagskrá lýkur klukkan 20.00.


19.-20. nóv. Vinnu – og skemmtiferð í Vatnaskóg.

Spennandi ævintýraferð þar sem drengirnar takast á við verkefni og ævintýri í Vatnaskógi að vetri til. Heimkoma á Holtaveg kl.15:00 á laugardag 20.nóvember. Bent er á að drengirnir þurfa að hafa meðferðis: kodda, lak, sæng eða svefnpoka, hlýjan fatnað, handklæði, sokka og nærföt til skiptanna, og helst fatnað sem má óhreinkast.

Allir viðburðir hefjast kl.17:00.
Þegar farið verður í Vatnaskóg er brottför einnig kl. 17:00.
Skógarmenn – Áfram að markinu!