Haustnámskeið fyrir leiðtoga verður haldið miðvikudaginn 22. september,
kl. 18:00 – 20:30 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28.
Námskeiðið er fyrir alla leiðtoga og aðstoðarleiðtoga í deildarstarfi KFUM og KFUK og er í samstarfi við kirkjuna.
Markmið námskeiðsins er einfalt og skemmtilegt: Rifja upp gömul lög og læra ný til þess að nota í starfinu en söngur er mikilvægur þáttur í æskulýðsstarfinu og KFUM og KFUK efla hann sem mest. Notast verður við æskulýðssöngbókina „Guð, í þinni hendi“ í henni er að finna 130 söngva sem sungnir hafa verið í kristilegu æskulýðsstarfi á Íslandi.
Umsjón með söngnum hafa Gunnar Einar Steingrímsson og Guðmundur Karl Einarsson sem eru miklir söngmenn og voru í ritstjórn bókarinnar „Guð, í þinni hendi“.
Þeir sem vilja taka með sér gítara eða önnur hljóðfæri sem þeir nota í starfinu eru hvattir til að hafa þau með. Hinir taka með sér góða skapið og röddina fögru sem Guð hefur gefið okkur öllum.
Allir eru velkomnir á námskeiðið en námskeiðsgaldið er 1.500 kr. á mann og er matur innifalinn.Leiðtogar hjá KFUM og KFUK greiða ekki námskeiðsgjald.
Skráning fer fram hjá Jóni Ómari, frekari upplýsingar í síma 8667917.
Skráningarfrestur er til 21. september á jonomar@kfum.is.