Sunnudaginn 30. maí verður hin árlega kaffisala sumarstarfs KFUK í Vindáshlíð. Kaffisalan markar á hverju vori upphaf sumarstarfsins. Að venju hefst kaffisalan með guðsþjónustu kl. 14.00 sem að þessu sinni er í höndum sr. Írisar Kristjánsdóttur. Eftir hana verður borið fram kaffi og meðlæti, fram til kl. 17.30. Veðurspá með ágætum. Allir hjartanlega velkomnir!