Dagana 6.-7. nóv. var haldið haustmót yngri deilda KFUM og KFUK og ÆSKEY á Dalvík. Um eitt hundrað börn komu saman úr starfi félagsins á Akureyri, Dalvík og Ólafsfirði ásamt börnum úr TTT-starfi Glerárkirkju og Akureyrarkirkju. Yfirskrift mótsins var „Tökum höndum saman“ en auk þess var lagt út frá orðum Páls postula úr Filippíbréfi þar sem hann minnir okkur á að vera glöð, já glöð í Drottni.
Á þemastund á laugardeginum máluðu allir þátttakendur broskarl á plexyglerhring og svo var skipt upp í hópa og gengið í tæplega hundrað hús og bros fært inn á hvert heimili frá krökkunum. Mótinu var svo slitið í Dalvíkurkirkju með helgistund og fararblessun. Nokkrar myndir frá helginni má skoða hér.