Nokkur pláss eru enn laus í síðasta flokk sumarsins í Vindáshlíð. Flokkurinn er fyrir stelpur á aldrinum 9-11 ára.
Það er búið að vera einstaklega skemmtilegt í Hlíðinni í sumar og bæði stelpur og starfsfólk eru búnar að skemmta sér vel eins og sjá má á myndasíðunum.
Þetta er síðasta tækifærið til að dvelja í Vindáshlíð á þessu sumri – vertu með!
Flokkurinn hefst 19. ágúst og stendur til 23. ágúst. Verð kr. 27.500! Skráning í s. 588 8899.