Aðaldeild KFUM mun að venju halda vikulega fundi yfir vetrartímann. Fundirnir eru á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 í húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í Reykjavík, nema annað sé tekið fram. Allir karlar eru velkomnir. Eftir fundina er boðið upp á kaffiveitingar gegn vægu gjaldi.
Fyrsti fundur haustsins verður 1. október
Fundarefni er:
Hvað varð íslenskri þjóð að falli
– Íslenska bankahrunið
Stefán Einar Stefánsson, guðfræðingur og siðfræðingur mun fjalla um efnið.
Stjórnun: Ársæll Aðalbergsson
Upphafsbæn: Þorsteinn Arnórsson
Hugleiðing: Sr. Jón Ómar Gunnarsson