Það er hress og fínn hópur drengja sem er mættur í 2. flokk Vatnaskógar.
Góður gangur er á öllum sviðum og eru drengirnir duglegir að taka þátt í öllum viðburðum. Bátanir og smíðastofan heilla en einnig er menn mjög virkir í frjálsum íþróttum, Svínadalsdeildinni í knattspyrnu og reyndar flestu því sem boðið er uppá.

Mikil stemming var á kvöldvöku, syngja sem æfður kór og eru vel með á nótunum. Vel gekk að sofna þrátt fyrir að þetta hafi verið 1. kvöldið.
Í hádegismat í dag voru kjötbollur ekki ólíkar þeim sem menn kalla sænskar IKEAkjötbollur með kartöflumús. Í dag taka við fastir liðir, fótbolti, frjálsar íþróttir, bátar, blak og heitir pottar eftir kvöldmat. Þess má geta að drengirnir velja sér þá viðburði sem þeirra hugur stendur til hverju sinni. Veðrið er frábært, logn skýað og fáeinar mýflugur á sveimi sem heiðra okkur með nærveru sinni.
Hérna eru MYNDIR