Í sumar verða leikjanámskeið KFUM og KFUK á þremur stöðum, á Holtavegi, í Hjallakirkju í Kópavogi og svo á nýjum stað í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Leikjanámskeið KFUM og KFUK eru fyrir 6 – 9 ára krakka og eru alla virka daga kl. 9 – 16 en að auki er hægt að fá gæslu kl. 8 – 9 og 16 – 17 gegn vægu gjaldi. Dagskrá leikjanámskeiðanna er skipulögð eina viku í senn en gert er ráð fyrir því að barn geti sótt námskeiðið í þrjár vikur án þess að fara í gegnum sömu dagskrána.
Nánar má lesa um leikjanámskeiðin HÉRNA Skráning hefst laugardaginn 28. mars sjá nánar HÉRNA